Agla var ein af eigendum Capacent til margra ára og starfaði sem ráðgjafi hjá Capacent Ráðningum og var ráðningarstjóri Vinna.is frá upphafi, þar til hún réði sig til Ráðum í september 2015.
Hún var ein stofnenda Ráðningarþjónustu Gallup árið 1997 sem síðar varð Capacent Ráðningar og árið 2000 stofnaði hún Vinna.is ráðningarstofu sem er í eigu Capacent.
Agla hefur séð um ráðningar forstjóra fyrirtækja, millistjórnenda, sérfræðinga og starfsfólks í framlínu. Hún hefur haldið fjölda námskeiða og fyrirlestra auk þess sem eftir hana hafa birst fjölmargar greinar og viðtöl tengd atvinnulífinu.
Agla var formaður blakdeildar ÍK (Íþróttafélags kvenna) árin 1996-2013. Sat í ritstjórn tímaritsins Veru 1995-1999 og í markaðsráði Capacent um tveggja ára skeið.
Agla hefur verið eigandi Ráðum síðan í desember 2016.